16 sep. 2009Juan Carlos Navarro var sjóðandi í dag og hitti 7/9 fyrir utan þriggjastigalínuna. Allt lið Póllands var með 8 þrista í leiknum en Spánn var með 13 þrista. Þá er það ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum evrópukeppninnar. Í síðasta leik dagsins var það Slóvenía sem vann Tyrkland með tveggja stiga mun. Tyrkland fékk nánast opið sniðskot í lok leiksins en gáfu út fyrir þriggjastiga línuna og reyndu að vinna leikinn sem mistókst. Tyrkir fá því það verðuga verkefni að leika gegn Grikkjum í 8-liða úrslitunum. Í fyrsta leik dagsins unnu Serbar lið Litháens eftir jafnan leik og Spánn vann lið gestgjafanna auðveldlega. 16. september Frakkland - Spánn Rússland - Serbía 17. september Tyrkland - Grikkland Slóvenía - Króatía Sigurliðin úr efri viðureignunum leika svo gegn hvort öðru þannig að það verður ekki síðri næsta umferð, sigurvegarar úr leikjum Frakkland/Spánn - Tyrkland/Grikkland í undanúrslitunum.