16 sep. 2009Dómaranámskeið verður haldið helgina 19. og 20. september næstkomandi. Bæði er um bóklega og verklega kennslu að ræða. Bóklega kennslan verður kennt í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á laugardeginum og sunnudagsmorgni verður bókleg kennsla en bóklega og verklega prófið verður eftir hádegi á sunnudegi. Dagskrá: Laugardagur 19. september Íþróttamiðstöðin í Laugardal 3. hæð 13-17 Fyrirlestrar og umræður - bóklegt Sunnudagur 20. september Íþróttamiðstöðin í Laugardal 3. hæð 10-12 Fyrirlestur og umræður - bóklegt 12 Bóklega prófið 13-16 Verklega prófið Vakin er athygli á því að dómaramenntun er hluti af fræðsluáætlun KKÍ sem er komin til framkvæmda. Dómaranámskeið er hluti af fyrsta þrepi fræðslustigans. [v+]http://www.kki.is/skjol/fraedslumal_thjalfaramenntun_april09.pdf[v-]Hér[slod-] má sjá fræðsluáætlun KKÍ. [v+]http://www.kki.is/skjol/fraedslunefnd_mat_a_thjalfurum_140509.pdf[v-]Hér[slod-] má sjá mat matsnefndar á innsendum ferilskrám frá því í vor. Konur eru sérstaklega hvattar til að mæta. Síðasti skráningardagur er 16. september. Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu. Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, kennitölu, síma, heimilisfang, e-mail og félag.