15 sep. 2009Leikir dagsins reyndust frábær skemmtun og enduðu allir leikirnir með tveggja stiga sigrum. Rússar unnu Makedóníu þar sem Makedónar áttu síðasta skotið til að jafna leikinn og tryggja sér framlengingu. Leikurinn var jafn allan tímann og liðin skiptust á forystu sitt á hvað. Frakkar eru enn ósigraðir en þeir unnu Grikki með því að skora úrslitakörfuna þegar 8 sekúndur lifðu af leiknum en það var hinn 22 ára Nando De Colo sem gerði það fyrir Frakka. Frakkar ósigraðir hingað til og til alls líklegir. Að lokum voru það Króatar sem unnu Þýskaland og tryggðu sér þar með fjórða og síðasta sætið í úrslitunum. Á morgun ræðst svo endanlega hvaða lið mætast Lokastaðan í milliriðli 1. Frakkland 2. Grikkland 3. Rússland 4. Króatía ------------- 5. Makedónía 6. Þýskaland