13 sep. 2009Timofey Mozgov treður hér með látum í leiknum í dag en hann var með þriðji stigahæðsti leikmaðurinn í rússneska liðinu með 10 stig og 6 fráköst Þá er leikjum dagsins á EM í Póllandi lokið en leikið var í Bydgoszcz þar sem þrír leikir fóru fram. Makedónía vann Þýskaland 86:75 í fyrsta leik dagsins. Rússland, sem eru núverandi Evrópumeistarar, urðu fyrsta liðið til að vinna Grikki, og unnu með þremur stigum, 68:65. Frakkar unnu svo góðan sigur á Króatíu þar sem munurinn var aðeins fjögur stig þegar skammt var til leiksloka. Góð vörn frakkanna hélt aftur af Króatíu og þeir unnu 87:79. Sjá myndir úr leikjunum, tölfræði og fleira á [v+] http://www.eurobasket2009.org/en/default.asp [v-] www.eurobasket2009.org[slod-]