12 sep. 2009Nú er undirbúningur liðanna hafinn og hafa verið nokkur æfingamót síðustu vikur meðal annars á Ísafirði og í Reykjanesbæ á Ljósanótt. Greifamót Þórsara á Akureyri hófst í gær og framundan er svo Valsmótið í Reykjavík. Í gær hófst keppni með þremur leikjum en sex lið taka þátt í mótinu á Akureyri. Þórsarar töpuðu fyrir Skallagrím 68:79. Breiðablik vann Fjölni 64:57 og KFÍ sigraði TIndastól 82:74. Í dag eru svo tveir leikir á hvert lið milli kl. 10-19 í kvöld. Hægt er að sjá myndir úr öllum leikjum gærdagsins [v+]http://www.runing.com/karfan [v-]hérna[slod-] sem Rúnar Haukur Ingimarsson tók fyrir Þór.