12 sep. 2009Tony Parker og félagar unnu Makedóníu í gær með 26 stigum. Tony skoraði 13 stig en 5 leikmenn frakka skoruðu 13-14 stig hver. Í dag eru þrír hörkuleikir á dagskránni á úrlsitakeppni EM í Póllandi. Tykland og Spánn mætast kl 13.45 í dag, Pólland og Serbía mætast kl 16.15 og svo í kvöld er það lokaleikur dagsins, viðureign Litháa og Slóvena kl 19.00. Úrslit gærdagsins urðu eftirfarandi: Rússland 62:59 Króatía Þýskaland 76:84 Grikkland Frakkland 83:57 Makedónía