10 sep. 2009Fræðslukvöld ÍSÍ fara nú aftur af stað eftir sumarfrí og hefjast fimmtudaginn 17. september nk. á Akureyri og 24. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík. Kennt verður í 5 kennslustunda lotum og er þessi fræðsla jafnframt liður í þjálfaramenntun ÍSÍ á 2. stigi almenns hluta. Fræðslukvöldin hefjast kl. 17.00 á báðum stöðum og lýkur kl. 21.00. Fræðslukvöldin eru öllum opin, 16 ára og eldri, þ.m.t. þeim sem ekki ætla sér í þjálfaranám. Fræðslan getur til dæmis í sumum tilfellum hentað iðkendum íþrótta og aðilum sem þurfa að sækja sér endurmenntun. Skráning er á [p+]namskeid@isi.is[p-] namskeid@isi.is[slod-] og þarf henni að vera lokið tveimur sólarhringum fyrir hvert námskeið. Námskeiðsgjald er 3.500 kr. og greiðist fyrir upphaf námskeiðs. Allar frekari upplýsingar um fræðslukvöld ÍSÍ veitir sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á [p+]vidar@isi.is[p-] vidar@isi.is[slod-] Skipulag fræðslukvölda á haustönn 2009 (með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar): Fim. 17. sept. á Akureyri. Næring íþróttafólks/lyf og íþróttir Fim. 24. sept. í Reykjavík. Skipulag þjálfunar (fyrri hluti) Fim. 8. okt. á Akureyri. Íþróttameiðsl Fim. 15. okt. í Reykjavík. Skipulag þjálfunar (seinni hluti) Fim. 22. okt. á Akureyri. Skipulag þjálfunar (fyrri hluti) Fim. 29. okt. í Reykjavík. Starfsemi líkamans Fim. 5. nóv. á Akureyri. Skipulag þjálfunar (seinni hluti) Fim. 12. nóv. í Reykjavík. Íþróttasálfræði Fim. 19. nóv. á Akureyri. Siðfræði/forvarnir. Fim. 26. nóv. í Reykjavík. Siðfræði/forvarnir Fyrirlesarar/kennarar á framangreindum fræðslukvöldum verða m.a. eftirtaldir: Rúnar Andrason Sálfræðingur Hafrún Kristjánsdóttir Sálfræðingur Fríða Rún Þórðardóttir Næringarfræðingur Örvar Ólafsson Verkefnisstjóri hjá ÍSÍ Stefán Ólafsson Sjúkraþjálfari Viðar Sigurjónsson Sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ