10 sep. 2009Evrópukeppnin í Póllandi er komin á fullt og nú er ljóst eftir riðlakeppnina hvaða lið fara áfram í milliriðla og halda áfram keppni. Grikkir, Frakkar, Tyrkir og Slóvenar unnu sína riðla en þar kom Slóvenía mest á óvart með því að vera fyrir ofan Serbíu og Spán og en auk þess var Bretlandi með þessum liðum í C-riðli. Einnig hefur gengi Litháen komið á óvart og verið undir væntingum en þeir komast þó áfram úr sínum riðli á eftir Tyrkjum og gestgjöfum Póllands. Þau lið sem eru á heimleið eru Ísrael, Lettar, Bretland og Búlgaría. Liðin sem fara áfram taka með sér stig úr innbyrðisviðureignum liðanna sem þau voru með í riðli. Tveir riðlar eru sameinaðir og leikur hvert lið þrjá leiki gegn liðunum sem koma ný inn úr hinum riðlinum. Keppnin heldur áfram á morgun og eru skipting riðlanna eftirfarandi: Milliriðlar: 1. Grikkland 2. Frakkland 3. Króatía 4. Þýskaland 5. Rússland 6. Makedónía 1. Tyrkland 2. Slóvenía 3. Serbía 4. Spánn 5. Pólland 6. Litháen