6 sep. 2009Margrét Sturlaugsdóttir og stelpurnar hennar í U18 ára landsliðshópi kvenna tóku þátt í Ljósanæturhraðmóti Njarðvíkur og Kosts um helgina. Þar voru mættar 30 stelpur sem skipuðu tvö lið og því gafst þjálfaranum gott tækifæri á að sjá stelpurnar spila við meistarflokka kvenna í efstu deild á mótinu. Stúlkurnar tóku vel á því en næsta skref verður að velja æfingahóp fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í maí á næsta ári.