
4 sep. 2009Fyrsta dómaranámskeið vetrarins fer fram í kvöld og á morgun og er þátttaka mjög góð. 17 manns eru skráðir á námskeiðið sem verður kennt í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag og á morgun. Það er ánægjulegt að sjá hve margir hafa skráð sig á námskeiðið í kvöld og komust færri að en vildu. Næsta námskeið verður helgina 19. og 20. september og hefst skráning miðvikudaginn 9. september. Dagskrá helgarinnar: Föstudagur 4. september 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal: Kl. 17-22.30 Fyrirlestur og umræður – bóklegt nám Laugardagur 5. september 3. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal: Kl. 10-12 Fyrirlestur og umræður – bóklegt nám Kl. 12 Bóklegt próf Kl. 13-16 Verklegt próf - Ásvellir