29 ágú. 2009Svartfjallaland vann Ísland 62-77 í B-deild Evrópukeppninnar en leikið var í Smáranum í dag. Íslensku stelpurnar létu stelpurnar frá Svartfjallalandi hafa fyrir hlutunum í dag en munurinn var í 10 stigum stóran hluta af leiknum. Í hálfleik leiddi Svartfjallaland 23-38 í hálfleik. Í upphafi seinni hálfleiks fór Ísland að minnka muninn en fyrir lok þriðja leikluta munaði 13 stigum 41-54. Í lokaleikhlutanum gáfust þær íslensku aldrei upp og gestrisnin var ekki mikil í Smáranum. Í stað þess að leyfa gestunum að rúlla yfir sig létu þær finna hressilega fyrir sér. Lokatölur 62-77 en með smá heppni hefði munurinn verði minni í lokin. Stigahæst hjá Íslandi var Helena Sverrisdóttir með 23 stig en hún skoraði 18 þeirra í seinni hálfleik. Birna Valgarðsdóttir var með 18 stig og 8 fráköst. aðrar skoruðu minna. Hjá Svartfjallalandi var Jelena Dubljevic með 20 stig. Nú fer senn að hefjast leikur Íslands og Austurríkis í Smáranum í B-deild karlakeppninnar. Hefst leikurinn kl. 16.30.