26 ágú. 2009
Íslenska karlalandsliðið er mætt til Svartfjallalands þar sem liðið leikur við heimamenn í kvöld klukkan 21:00 að staðartíma sem er 19:00 að íslenskum tíma. Talsverð veikindi eru að hrjá leikmenn liðsins og ljóst að Fannar Ólafsson verður ekki með og þær fréttir voru að berast að utan að ólíklegt er að Jón Arnór Stefánsson og Jóhann Árni Ólafsson verði með í kvöld. Þetta skýrist hins vegar all betur þegar líður á daginn og þá færum við frekari fréttir.