26 ágú. 2009Íslenska kvennalandsliðið vann góðan sigur á liði Írlands í kvöld á Ásvöllum [v+]http://www.eurobasketwomen2009.com/en/cid_X6FnqP4DGbURoW6MX7dzD2.gameID_6343-A-25-9.compID_pnlxO1HYJhUh,MTfrmUO03.season_2009.roundID_6343.teamID_.html#{4D77DBDB-13BD-4DB1-A651-30395374499D}[v-]77:68[slod-]. Stelpurnar voru yfir allan tímann en leikur þeirra var mjög öruggur og þéttur allan tímann. Stigahæst hjá Íslandi var Birna Valgarðsdóttir með 21 stig en næst henni kom Helena Sverrisdóttir með 14 stig og 10 stoðsendingar. Signý Hermannsdóttir og María Ben Erlingsdóttir bættu við 12 stigum hvor. Hjá Írlandi var Michelle Aspell stigahæst með 14 stig. Næsti leikur stelpnanna er á laugardag gegn Svartfjallalandi í Smáranum og hefst leikurinn kl. 14:00.