24 ágú. 2009Fyrsta dómaranámskeið vetrarins verður haldið föstudaginn 4. september og laugardaginn 5. september. Bæði er um bóklega og verklega kennslu að ræða. Bóklega kennslan verður kennt í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Námskeið verður einnig á höfuðborgarsvæðinu helgina 19. og 20. september. Á föstudeginum og á laugardagsmorgninum verður bókleg kennsla en bóklega og verklega prófið verður eftir hádegi á laugardegi. Námskeiðið verður á höfuðborgarsvæðinu en ítarlegri dagskrá verður birt fimmtudaginn 27. ágúst. Vakin er athygli á því að dómaramenntun er hluti af fræðsluáætlun KKÍ sem er komin til framkvæmda. Dómaranámskeið er hluti af fyrsta þrepi fræðslustigans. [v+]http://www.kki.is/skjol/fraedslumal_thjalfaramenntun_april09.pdf[v-]Hér[slod-] má sjá fræðsluáætlun KKÍ. [v+]http://www.kki.is/skjol/fraedslunefnd_mat_a_thjalfurum_140509.pdf[v-]Hér[slod-] má sjá mat matsnefndar á innsendum ferilskrám frá því í vor. Konur eru hvattar til að mæta enda vantar fleiri kvendómara í hreyfinguna. Síðasti skráningardagur er 2. september. Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu. Skráning er á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-] og þarf að taka fram nafn, kennitölu, síma, e-mail og félag.