18 ágú. 2009Sunnudaginn 30. ágúst boðar Körfuknattleikssamband Íslands unglingaráð aðildarfélaga sinna til fundar um starfsemi yngri flokka í körfuknattleik og afreksstarf unglinga hjá KKÍ. Fundurinn verður haldinn í fundarsal ÍSÍ í Laugardalnum og hefst hann kl. 12:00. Dagskrá verður send út eigi síðar en þriðjudaginn 25.ágúst. Fundur sem þessi var haldinn í fyrsta sinn á síðasta ári og var ánægulegt hversu vel hann tókst og því hefur verið ákveðið að hafa fundi sem þessa árlega. Við hvetjum alla þá sem starfa að unglingamálum í sínum félögum að koma á fundinn og taka þátt í umræðum um yngri flokka starfið í körfuboltanum. Þeir sem hafa áhuga á að koma vinsamlegast látið vita hver kemur frá ykkar félagi með því að senda skráningu á kki@kki.is fyrir fimmtudaginn 27.ágúst.