10 ágú. 2009Á vordögum 2009 lagði fræðslunefnd KKÍ fram fræðsluáætlun fyrir sambandið sem nú loks er komin til framkvæmda. Nú í haust verður boðið upp á námskeið í KKÍ 1, sem er fyrsta þrep fræðslustigans. Fræðsluáætlunina má finna [v+]http://www.kki.is/skjol/fraedslumal_thjalfaramenntun_april09.pdf[v-]hér[slod-]. Fyrsta námskeiðið sem boðið verður upp á er inngangur að þjálfun. Námskeiðið verður 17. ágúst nk. kl. 18:00 í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á námskeiðinu er m.a. farið yfir það hvað felst í því að vera þjálfari, hvernig mótafyrirkomulag KKÍ er byggt upp, auk annarra atriða sem nauðsynleg eru til að halda áfram inn í fræðslustigann. Þjálfarar þurfa að klára KKÍ 1 og ÍSÍ 1 til að geta hafið nám á KKÍ 2, en boðið verður upp á námskeið í KKÍ 2 haustið 2010. Skráning á inngang að þjálfun fer fram á [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-] fram til hádegis 17. ágúst. Taka skal fram nafn, félag, netfang, símanúmer og hversu lengi viðkomandi hefur þjálfað. Þátttakendur greiða ekkert námskeiðsgjald.