8 ágú. 2009Nú í lok júlí var tilkynnt hverjir væru leikmenn ársins í karlaflokki og kom það í hlut liðsfélaganna frá Spáni þeirra Pau Gasol og Ricky Rubio að vera valdir leikmaður ársins og besti ungi leikmaðurinn fyrir árið 2009. Framundan er nýtt tímabil í NBA hjá þeim báðum en Rubio var valin af Minnesota Timberwolves í nýliðavalinu í vor og mun því kljást við Gasol og félaga í meistarliði LA Lakers í vetur. Áður en að því kemur munu þeir þó leika saman fyrir hönd Spánar í úrslitum Evrópukeppninar í Póllandi í september þar sem þeir tveir verða í eldlínunni. Ricky Rubio var valinn annað árið í röð besti ungi leikmaðurinn en það verður spennandi að sjá hvernig honum mun vegna á vellinum á komandi leiktíð.