7 ágú. 2009Vikuna 10.-14. ágúst mun Valur vera með körfuboltanámskeið fyrir börn og unglinga í Vodafone höllinni. Námskeiðið verður frá kl. 9-12 fyrir börn fædd 1998-2003 og kostar 5.000 krónur. Frá 12:30-14:00 er námskeið fyrir eldri börn fædd 1997 og eldri og kostar það 2.500 krónur. Lögð verður sérstök áhersla á þjálfun í smærri hópum auk einstaklingsþjálfunar fyrir eldri þátttakendur skólans. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og unnið verður í undirstöðuatriðum. Reyndir og góðir leiðbeinendur sjá um skólann og gestakenna. Skólastjóri verður Lýður Vignisson yfirþjálfari körfunnar. Tekið er við skráningum á netfanginu lydur06@ru.is og á skrifstofu félagsins.