5 ágú. 2009Körfuknattleiksdeild Heklu stendur fyrir Steetballmóti í samstarfi við Sumarhátið á Hellu 2009. Keppt verður á fjórum völlum sem verða staðsettir á Gaddstaðaflötum þar sem hátíðin fer fram. Keppt verður í tveim aldursflokkum, 15 ára og yngri og 16 ára og eldri. Spilað verður 3 á 3 þar sem öll lið mega vera með einn skiptimann, hámark fjórir í liði. Leikið verður í 10 mínútur eða upp í 7. Skráningargjald er 4.000 þúsund og greiðist það á staðnum. Mótið hefst kl 10:00 hjá 15 ára og yngri og kl 13:00 hjá 16 ára og eldri. Tilkynna þarf skráningu fyrir kl 19:00 á föstudeginum til Guðna annað hvort á með emaili á gudni10@hotmail.com eða í síma:8917898. Mæting klukkutíma fyrir byrjun móts. Vegleg verðlaun í boði. Allir velkomnir.