31 júl. 2009Í dag er hvíldardagur á EM í Sarajevo en íslenska liðið æfði fyrir lokaátökin. Liðið er í baráttu um 13. sætið og eru strákarnir staðráðnir að sigra þá tvo leiki sem eftir eru. Á morgun laugardag leika strákarnir gegn Georgíu klukkan 12:00 að íslenskum tíma. Hægt verður að fylgjast með lifandi tölfræði frá leiknum [v+]http://www.fibaeurope-u18men.com/enDivB/default.asp[v-]hér.[slod-] Svíþjóð og Pólland hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum gegn Englandi og Montenegro en bæði lið voru í sama riðli og ísland. Heitt er í veðri í Sarajevo og fór liðið í sund til að kæla sig niður en í kvöld mun liðið borða saman á bosnískum veitingastað. Ægir Þór Steinarsson fyrirliði liðsins lék slappur í gær og æfði hann ekki með liðinu í dag vegna þess, kappinn ætlar hinsvegar að hrista þetta af sér og leika til sigurs gegn Georgíumönnum á morgun. Haukur Helgi Pálsson lék verkjalaus í gær og er sprækur fyrir lokaátökin. Það fer vel um liðið á Hótel Hollywood og aðstæður stórfínar. Kveðja frá Sarajevo