25 júl. 2009Eftir töp í fyrstu tveimur leikjunum á mótinu eru strákarnir staðráðnir í að komast á sigurbraut. Andstæðingar okkar í dag er lið Slóvakíu. Haukur Helgi Pálsson meiddist á hné í leiknum gegn Finnum en þar lék hann einungis 15 mínútur. Ingi Þór sagði í morgun við heimasiðuna að Haukur stefndi á að spila í dag og vonandi gengur það eftir. Leikurinn hefst klukkan 16:30 að íslenskum tíma. Slóvakía sat hjá í fyrstu umferð en liðið tapaði fyrir Svíum í gær [v+]http://www.fibaeurope-u18men.com/enDivB/Default.asp?cid={E7BA731A-A812-4C5C-9C62-E987CBB10B2B}&pageID={BDA2D1DE-CE6D-4246-8315-19ABFD70CBBC}&compID={2248A846-FA78-40FF-B03C-54B460890F45}&season=2009&roundID=6848&teamID=&gameID=6848-B-3-2&[v-]73:84[slod-] Hægt er að lesa allt um mótið sem og fylgjast með leikjunum lifandi [v+]http://www.fibaeurope-u18men.com/enDivB/default.asp[v-]hér[slod-]