23 júl. 2009Þá er löngu og ströngu ferðalagi lokið og mannskapurinn að reyna að venjast 38°C stiga hitans sem er hér í Bosníu. Fyrsti leikurinn er gegn hinu fyrna sterka pólska liði í kvöld kl 19:45 að íslenskum tíma. Strákarnir sem urðu Norðurlandameistarar í maí eru búnir að æfa vel í sumar og lagt töluvert á sig á leiðinni á evrópumótið. Fyrsti leikurinn er gegn Pólverjum en þeir sigruðu B-keppnina árið 2007 þegar að ´91 árgangur þeirra lék í evrópukeppni sem fram fór í Skopje í Makedóníu, en Pólverjar höfðu ekki unnið sig áður sem A-þjóð í aldurshópnum fyrir ofan. Verkefnið er spennandi og krefjandi en akkurat það sem beðið hefur verið eftir. Strákarnir eru í riðli með Pólverjum, Svíum sem urðu í þriðja sæti fyrir tveimur árum, Finnum sem urðu í 11. sæti og Slóvökum sem urðu í 13. sæti, en allt eru þetta hátt metnar þjóðir sem eiga erindi á að komast uppúr riðlinum. Strákarnir eru á leið á sína fyrstu æfingu.