21 júl. 2009U-18 ára landslið karla er á leið til Sarajevo í Bosníu til að taka þátt í Evrópukeppninni sem hefst fimmtudaginn 23. júlí. Hópurinn lagði af stað klukkan 07:00 í morgun og er ferðinni heitið til London þar sem gist verður í eina nótt. Á miðvikudag verður svo flogið til Sarajevo með millilendingu í Belgrade. Þetta er langt og strangt ferðalag en hópurinn kemur aftur heim 4. ágúst. Fyrsti leikur liðsins verður gegn Póllandi á fimmtudagskvöld en liðið er auk þess með Slóvakíu og frændum okkar Svíum og Finnum í riðli sem eru ekki ókunnug lið þar sem leikið var gegn þeim á Norðurlandamótinu í maí síðastliðnum. Íslenska liðið varð eins og ferskt er í minni Norðurlandameistari. Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum: Arnar Pétursson • Breiðablik Arnþór Freyr Guðmundsson • Fjölnir Björn Ingvi Tyler Björnsson • Fjölnir Daði Grétarsson • ÍR Haukur Óskarsson • Haukar Haukur Pálsson • Fjölnir Ragnar Nathanelsson • Hamar Sigurður Þórarinsson • Skallagrímur Tómas Tómasson • Fjölnir Trausti Eiríksson • Skallagrímur Þorgrímur Guðni Björnsson • Valur Ægir Þór Steinarsson • Fjölnir Ingi Þór Steinþórsson • Þjálfari Erlingur Hannesson • Fararstjóri Gunnlaugur Bríem • Sjúkraþjálfari Hægt verður að fylgjast með gangi mála þar sem m.a. allir leikir verða í beinni tölfræðilýsingu [v+]http://www.fibaeurope-u18men.com/enDivB/default.asp[v-]hér[slod-] Einnig verða fréttir frá hópnum á heimasíðunni [v+]www.kki.is[v-]kki.is[slod-]