21 júl. 2009Opnað hefur verið fyrir skráningu á Unglingalandsmótið og geta keppendur skráð sig til leiks með því að fara inn á [v+]http://www.umfi.is/umfi/unglingalandsmot/[v-] heimasíðu mótsins[slod-]. Sú ákvörðun hefur verið tekin að skráningu lýkur mánudagskvöldið 27. júlí en undanfarið hefur skráning staðið fram á miðvikudagskvöld. Þetta er gert til að gefa greinastjórum og mótshöldurum lengri tíma til að klára tímaseðla, setja saman mót og útbúa mótsgögn en nær ógerlegt er að vinna þá vinnu á eins skömmum tíma og gert er ráð fyrir í reglugerð Unglingalandsmótsins. Með þessu móti geta tímaplön legið fyrr fyrir, öllum til hagsbóta. Er fólk beðið að sýna þessu skilning og virða þessi tímamörk.