14 júl. 2009Bandaríska liðið sigraði á heimsmeistaramóti U19 landsliða sem fram fór á Nýja Sjálandi um helgina. Bandaríska liðið sigraði lið Grikkja 87-79 í úrslitaleiknum en þetta var í fyrsta sinn síðan 1991 sem lið Bandaríkjanna sigrar á þessu móti. Leikurinn var jafn og skemmtilegur en 15 sinnum var annað hvort jafnt eða liðin skiptust á forystu. Staðan í hálfleik var 46:30 fyrir Bandaríkin, en Grikkirnir unnu þriðja leikhluta 21:14 og sóttu í sig veðrið á lokasprettinum þrátt fyrir að misnota 7 víti í röð á sama tíma. Að lokum var það hitni og hraði Bandaríkjanna sem skóp þeim sigurinn en þeir voru með 52% nýtingu innan teigs, 40% utan þriggjastiga-línunar og 81% á vítalínunni. Í leik um bronsið sigraði Króatía lið Ástrala 87:81 þar sem MVP mótsins, Mario Dalas í liði Króatíu skoraði 24 stig af sínum 28 í leiknum í seinni hálfleik og þar af 9 í 4. leikhluta. Leikar stóðu jafnir 79.79 þegar 1:11 mín. voru eftir af leiknum en Króatar höfðu betur að lokum.