10 júl. 2009U18 ára landsliðið okkar heldur til Bosníu þann 21. júlí næstkomandi og tekur þátt í Evrópukeppninni sem þar fer fram. Strákarnir hafa verið duglegir að safna fyrir ferðinni en um helmingur af kostnaði vegna þátttökunnar fellur á þá. Nú eru þeir að selja Coke til styrktar för sinni út. Hægt er að kaupa kippu af Coca-Cola í 0.5 ltr. flöskum en það eru 18 flöskur á 3.000 kr. og kjörið fyrir til dæmis ferðalagið eða bara til að hafa handægt í sumar. Fyrir nánari upplýsingar og pantanir er hægt að senda póst á netfangið [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-] og hvetjum við sem flesta til að styrkja strákana fyrir komandi átök.