10 júl. 2009Búið er að draga í töfluröð í Iceland Express deild karla og því ljóst hvaða lið mætast í fyrstu umferð í október næstkomandi. Meðal viðureigna í fyrstu umferð er að nýliðar Fjölnis og Hamars hefja leik á útivelli. Fjölnismenn heimsækja bikarmeistara Stjörnunnar á meðan Hamarsmenn taka hús á Snæfellingum. Íslandsmeistarar KR hefja titilvörnina á Selfossi þegar þeir sækja FSu heim. Fyrstu tvær umferðirnar: 1. umferð: Keflavík-Breiðablik Snæfell-Hamar FSu-KR ÍR-UMFN Tindastóll-UMFG Stjarnan-Fjölnir 2. umferð: UMFN-Tindastóll KR-ÍR Hamar-FSu Breiðablik-Snæfell Stjarnan-Keflavík Fjölnir-UMFG Stefnt er að hafa 1. umferðina fimmtudaginn 15. október.