6 júl. 2009Nú er búið að velja æfingahóp A-landsliðs karla fyrir komandi leiki í seinni umferð Evrópukeppninnar í haust. Sigurður Ingimundarson þjálfari, hefur valið þrjá leikmenn úr U18 liðinu sem varð Norðurlandameistari nú á dögunum til æfinga en alls eru 22 leikmenn í úrtakinu að þessu sinni. Íslenska karlalandsliðið leikur fjóra leiki í haust og þar af tvo á heimavelli. Ákveðið hefur verið að leika báða heimaleikina í Smáranum og einn kvennaleik af þrem að auki en laugardaginn 29. ágúst eru tveir landsleikir á dagskrá og því verður sannkallaður landsliðsdagur í Smáranum þann daginn. Dagskrá A-landsliðs karla: 19. ágúst Danmörk – Ísland Álaborg, Danmörk 22. ágúst Ísland - Holland Smárinn, Kópavogi 26. ágúst Svartfjallaland – Ísland Podgorica, Svartfjallalandi 29. ágúst Ísland · Austurríki Smárinn, Kópavogi Þeir leikmenn sem skipa æfingahópinn eru: Fannar Ólafsson KR 31 árs · 74 landsleikir Fannar Helgason Stjarnan 25 ára · 5 landsleikir Pavel Ermolinski U.B. La Palma 22 ára · 10 landsleikir Páll Axel Vilbergsson Grindavík 31 árs · 89 landsleikir Þorleifur Ólafsson Grindavík 25 ára · 14 landsleikir Sigurður Þorvaldsson Snæfell 29 ára · 47 landsleikir Sigurður Þorsteinsson Keflavík 21 árs · 17 landsleikir Hörður Axel Vilhjálmsson Keflavík 21 árs · 12 landsleikir Jón Norðdal Hafsteinsson Keflavík 28 ára · 51 landsleikir Logi Gunnarson Njarðvík 28 ára · 72 landsleikir Magnús Þór Gunnarsson Njarðvík 28 ára · 69 landsleikir Jóhann Ólafsson Njarðvík 23 ára · 12 landsleikir Sveinbjörn Claessen ÍR 23 ára · 3 landsleikir Jón Arnór Stefánsson Bennetton Treviso 27 ára · 46 landsleikir Jakob Örn Sigurðarson Sundsvall Dragons 27 ára · 44 landsleikir Hlynur Bæringsson Snæfell 27 ára · 46 landsleikir Helgi Már Magnússon KR 27 ára · 58 landsleikir Rúnar Ingi Erlingsson Njarðvík 20 ára · Nýliði Ómar Sævarsson Grindavík 27 ára · Nýliði Ægir Þór Steinarsson Fjölnir 18 ára · Nýliði Haukur Helgi Pálsson Fjölnir 17 ára · Nýliði Ragnar Natanaelson Hamar 18 ára · Nýliði Þjálfari er Sigurður Ingimundarson, Solna Vikings.