26 jún. 2009Reykjavíkurúrval drengja sigraði lið Marion IN frá Bandaríkjunum í síðustu umferð riðlakeppni körfuknattleiks á Alþjóðaleikum ungmenna í Aþenu í dag. Leikurinn var æsispennandi en reykvíska liðið sigraði nánast á flautukörfu 49-47. Sannarlega glæsilegur sigur á þessu sterka bandaríska liði hjá strákunum. Í gær töpuðu reykvísku strákarnir naumlega fyrir Kecskement frá Ungverjalandi en á miðvikudaginn sigruðu þeir Pireas frá Grikklandi. Ungverska liðið komst áfram í undanúrslit keppninnar og því hefur lið Reykjavíkur liðið lokið keppni.