25 jún. 2009Reykvíska körfuknattleiksliðið sem keppir á Alþjóðaleikum ungmenn í Aþenu þessa dagana tapaði leik sínum gegn Kecskement frá Ungverjalandi í morgun. Strákarnir byrjuðu leikinn mjög vel og voru yfir 15-0. Í hálfleik voru þeir með 13 stiga forystu og allt leit vel út. Í seinni hálfleik breyttist leikurinn og Ungverjarnir náðu forystu undir lokin og sigruðu 48-43. Okkar menn voru að sjálfsögðu mjög svekktir með tapið eftir annars góða byrjun á leiknum. Næsti leikur Reykjavíkur í körfunni er á morgun gegn Marion IN frá Bandaríkjunum. Smellið [v+]http://www.athens2009icg.gr/[v-]hér[slod-] til að skoða nánari úrslit leikanna.