18 jún. 2009FIBA gefur út skemmtilegt blað annan hvern mánuð sem kallast Assist og er fyrir eldheita körfuboltaáhugamenn um allan heim. Í hverju blaði eru nokkur atriði tekin fyrir og krufin til mergjar ásamt því að í hverju blaði er farið ítarlega yfir eitthvert leikkerfi eða skipulag sem eitthvað lið er að nota í raun og veru. Í hverju blaði eru minnst ein grein um sókn, vörn, líkamsþjálfun og grunnatriði/byrjendaatriði. Sem dæmi úr nýjasta tölublaðinu eru greinar um hvernig má fækka töpuðum boltum, farið er ítarlega yfir sókn og staðsetningar leikmanna Villanova háskólans í NCAA og varnarafbrigði Barcelona-liðsins gegn hindrunum. Hægt er að nálgast nýjasta blaðið ásamt öllum eldri tölublöðunum á vef fiba.com með því að smella á tengilinn hér að neðan. [v+]http://www.fiba.com/pages/eng/fc/expe/assiMaga/p/openNodeIDs/1035/selNodeID/1035/assiDown.html [v-]FIBA Assist[slod-] Þess má geta að FIBA á einnig 77 ára afmæli í dag 18. júní.