16 jún. 2009Útvarpsstöðin X-ið 977 stendur fyrir árlegu götuboltamóti sem fer fram laugardaginn 20. júní á Miklatúni. Spilaðir eru leikir þrír-á-þrjá eftir hefðbundnum götuboltareglum og eru leikmenn Iceland Express deildanna ekki gjaldgengir í mótið. Til að taka þátt þarft þú aðeins að skrá nafnið á þínu liði á netfanginu [p+]xid977@xid977.is[p-] xid977@xid977.is[slod-]. Þátttökugjald er 3000 kr. á lið og eru glæsileg verðlaun í boði.