16 jún. 2009KKÍ hefur gert þriggja ára samning við Marka ehf sem er umboðsaðili fyrir Spalding körfubolta á íslandi. Samningurinn kveður m.a. á um að Spalding verði notaður í öllum leikjum í Iceland Express deildum karla og kvenna. Spalding boltar eru flestum körfuboltamönnum vel kunnugir en þessir boltar hafa verið í fremstu röð í áratugi. NBA deildin vestra er ein margra deilda sem nota Spalding bolta. Öll aðildarfélög KKÍ fá að kaupa Spalding á sérstökum kjörum og á það jafnt við um bolta fyrir meistaraflokka sem og yngri flokka. Á mynd sjást Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Björn Leifur Þórisson frá Marka ehf sem er umboðsaðili Spalding á Íslandi skrifa undir samninginn.