6 jún. 2009Uppfært: Ísland sigrar í leiknum 62:52 og hefur því unnið alla 3 leiki sína til þessa. Þeir leika svo síðasta leikinn í riðlinum í dag kl 15.00 þegar þeir mæta BCM Ostrava frá Tékklandi, en á morgun eru svo úrslit. Uppfært: Staðan eftir 3. leikhluta er 51:44 fyrir Ísland. Strákarnir í U15 eru að leika fyrri leik dagsins í dag á Copenhagen Invitational gegn U15 liði Danmerkur. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 11:17 fyrir Dani. Staðan í leikhléi er 30:32. Við munum uppfæra stöðuna um leið og hún berst frá Danmörku eftir 3. leikhluta og í lok leiksins. Stigaskorið í leiknum: Mattías Orri með 22 stig, Martin með 10, Valur 9, Baginski 8, Dagur 7, Elvar 4 og Stefán 2.