
6 jún. 2009A-landslið karla tapaði í morgun fyrir Lúxemborg í lokaleik sínum á Smáþjóðaleikunum. Leikurinn fór 74:66 fyrir Lúxemborg. Það er því ljóst að ísland lendir í 4. sæti á eftir Andorra, Lúxemborg og Kýpur sem sigruðu leikana í þetta skipti. Jón Nordal Hafsteinsson þurfti að fara á sjúkrahús í lok fyrri hálfleiks þar sem hann fékk skurð enni og þurfti að sauma 6 spor. Sigurður Þorsteinsson og Logi Gunnarsson voru stigahæstir í íslenska landsliðinu. Þeir gerði 9 stig hvort. Páll Axel Vilbergsson, Þorleifur Ólafsson og Pavel Ermolinskji skoruðu allir 8 stig hver.


