5 jún. 2009Nú er lokið leik Íslands og Slóvakíu í Kaupmannahöfn en hann endaði með sigri okkar stráka 85:77. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 31:19 fyrir Ísland. Í öðrum leikhluta skoruðu okkar strákar 24 stig gegn 21 og leiddu því í 55:40 þegar Einar Árni Jóhannsson, þjálfari fór yfir málin í leikhléi. Staðan eftir 3. leikhluta var 72:60. Okkar menn byrjuðu rólega í 4. leikhuta og Slóvakía minnkaði muninn í 76:70 þegar leikhlutinn var hálfnaður. Strákarnir lönduðu samt góðum sigri og hafa því unnið báða leikina í sinum riðli í dag. Þess má geta að lið Slóvaka í fyrra U14, sigraði á mótinu og því er þetta frábær sigur hjá okkar mönnum. Stigahæstir í leiknum voru þeir Matthías Orri með 28 stig, Valur Orri með 23 "Magic" Baginski með 12, Emil 8, Stefán og Dagur með 6 og Martin með 2. Á morgun mæta þeir svo Dönum kl 11.00 að íslenskum tíma og kl 15.00 er það leikur gegn BCM Ostrava frá Tékklandi.