5 jún. 2009Bæði kvenna- og karlalandslið Íslands sigruðu í leikjum sínum í dag. Konurnar léku við heimastúlkur í Kýpur í úrslitaleik um silfrið á leikunum. Ísland vann 51:61 í seiglu sigri. Dómarar leiksins voru báðir frá Grikklandi og voru "erfiðir" að sögn Hannesar S. Jónssonar, formanns KKÍ og fararstjóra í ferðinni. Þeir leyfðu Signýju og Helenu lítið og Kristrún hvíldi. Aðrir leikmenn stigu upp og því silfrið í höfn. Aðeins slæmur leikur gegn Möltu í upphafsleik mótsins kom í veg fyrir að Ísland hefði sigrað mótið. Stigahæstar í íslenska liðinu í dag voru þær Helena Sverrisdóttir með 19 stig og 5 stoðsendingar og Birna Valgarðsdóttir með 15. Báðar tóku þær einnig 8 fráköst. Strákarnir léku við San Marínó og unnu fyrirhafnalítinn sigur 93:39 þar sem margir leikmenn hvíldu fyrir lokaleikinn á morgun gegn Lúxemborg, en sá leikur er snemma og með sigri þar tryggjum við okkur 2. sætið á leikunum. Stigahæstir í dag hjá voru þeir Páll Axel með 15 stig, Sigurður Þorsteinsson 14 stig og Logi með 13 stig. Sigurður Þorvaldsson lék í tæpar 10 mínútur en tók 12 fráköst á þeim tíma. Strákarnir leika á morgun kl. 08.00 að íslenskum tíma.