4 jún. 2009Íslenska kvennalandsliðið sigraði fyrr í dag stöllur sínar frá Lúxemborg 80:55. Eftir að staðan hafði verið 19:19 eftir 1. leikhluta sigruðum við 2. leikhluta 23:12 og því staðan í hléi 42:31. Íslenska liðið hélt uppteknum hætti í eftir hálfleik og vann hann 21:11 og því eftirleikurinn auðveldur. Síðasti leikhluti fór 17:13 fyrir Ísland og því 25 stiga sigur í höfn. Stigahæstar í dag voru Birna Valgarðsdóttir með 25 stig og 7 fráköst. Helena Sverrisdóttir var með 22 stig og 8 fráköst og stal einnig 4 boltum.