3 jún. 2009Þeir félagar Sigmundur Már Herbertsson og Björgvin Rúnarsson dæmdu í gær sinn leikinn hvor hér á Smáþjóðaleikunum. Sigmundur dæmdi karlaleik Kýpur og Lúxsemborg og Björgvin dæmdi kvennaleikinn hjá sömu þjóðum. Hjá körlunum er dæmt í þriggja dómarakerfinu en hjá konunum er tveggja dómarakerfið. Í dag dæmir Sigmundur karlaleik Lúxemborg-San Marínó og Björgvin karlaleik Andorra-Malta, og eru þeir báðir dómarar númer eitt í sínum leikjum.