1 jún. 2009Í kvöld fór setningarathöfnin fram á smáþjóðaleikunum á Kýpur en keppni hjá okkar fólki hefst í fyrramálið. Kvennaliðið hefur leik á morgun klukkan 12 að staðartíma sem er 9 að íslenskum tíma. Athygli er vakin á því að það er 3 klukkustunda munur. Karlaliðið á svo leik klukkan 11 að íslenskum tíma. Bæði liðin hefja leik gegn Möltu. Mótshaldarar segja að leikir liðanna verði með lifandi tölfræði á netinu og vonum við að það sé rétt. Hægt verður að fylgjast með gangi mála [v+]http://www.cyprus2009.org.cy/results/BB/BB.htm[v-]hér[slod-] (ATH: smellið á stöðuna í livestattinu til að sjá nánari tölfræði leiksins)