31 maí 2009Nú eru landsliðin komin til Kýpur eftir skemmtilegt ferðalag dagsins. Ferðalagið gekk vel en því miður skiluðu sér fáar töskur þannig að margir þurfa að bíða til morguns eftir töskunum. Hér fer vel um hópinn, hótel og aðstaða til fyrirmyndar. Fyrstu æfingar liðanna eru í fyrramálið, setningarathöfn annaðkvöld og fyrstu leikir á þriðjudag. Bestu kveðjur heim frá hópnum.