29 maí 2009Í gær fór fram fyrsti stjórnarfundur hjá nýkjörinni stjórn KKÍ. Þar var farið yfir hvaða línur ætti að leggja fyrir komandi stjórnarsetur og jafnframt var kosið í embætti. Verið er að leggja lokahönd á að skipa í allar nefndir og birtum við það innan skamms en önnur embætti skiptust þannig að Hannes var kjörinn formaður á þingi, Guðbjörg Norðfjörð verður varaformaður, Eyjólfur Guðlaugsson er gjaldkeri og Þóra Melsteð er ritari. Auk þeirra eru Páll Kolbeinsson, Erlingur Hannesson og Guðjón Þorsteinsson í stjórn. Varamenn eru Lárus Friðfinnsson, Bryndís Gunnlaugsdóttir og Guðjón Guðmundsson.