27 maí 2009Nú styttist í golfmót körfuboltamanna árið 2009, en það verður haldið föstudaginn 12. júní kl. 14:00 á golfvellinum á Efra-Seli á Flúðum. Nú þegar eru allmargir búnir að skrá sig á mótið. Nauðsynlegt er að fá skráningar inn sem fyrst inn eða í allra síðasta lagi miðvikudaginn 10. júní til að auðvelda undirbúninginn. Á mótið eiga erindi allir þeir sem einhvern tíma hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið. Einnig eru makar velkomnir. Leiknar verða 18 holu punktakeppnir, bæði með og án forgjafar, þar sem gefin hámarksforgjöf verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Þetta er í tólfta sinn sem mótið fer fram og hefur þátttakan verið ágæti hinga til. Það verða allir ræstir ræstir út samtímis kl. 14:00, svo keppendur ljúki leik á svipuðum tíma og geti því átt góða stund í golfskála að leik loknum og rifjað upp gamlar stundir. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Ríkharði Hrafnkelssyni í síma 897-6279 eða tölvupósti [p+]rikhardur@sfs.is[p-] rikhardur@sfs.is[slod-]