26 maí 2009
Í gær komu liðin okkar öll heim frá Norðurlandamótinu í Svíþjóð og var tekið á móti hópnum í Leifsstöð seinnipartinn í gær. Allur hópurinn stóð sig frábærlega og voru leikmennirnir landi og þjóð til sóma. Þessi mynd var tekin af Norðurlandameisturum U18 eftir að þeim hafði verið veitt blóm við heimkomuna.