25 maí 2009Strákarnir í U-16 kláruðu mótið hjá sér með stæl þegar þeir lögðu Finna að velli í leik um þriðja sætið en Finnarnir unnu viðureign liðanna fyrr í vikunni. Byrjunarlið Íslands: Oddur Birnir Pétursson, Arnar Björnsson, Snorri Hrafnkelsson, Kristófer Acox og Valur Valsson. Strákarnir voru vel stemmdir í leiknum sem fór fram í íþróttahúsinu í Vasalund en þeir komust í 11-2. Reyndar var fyrsta karfan finnsk en eftir það voru öll stig íslensk. Þeir héldu áfram að keyra á körfu Finnana sem þó aðeins að minnka muninn áður en leikhlutinn var úti og staðan 16-9. Í öðrum leikhluta dróst saman með liðunum en Ísland ávallt með forskotið. Finnland komst yfir 23-24 en aðeins í skamma stund þar sem Ísland skoraði síðustu fjögur stigin en þar voru að verki Arnar Björnsson og Snorri Hrafnkelsson og tryggðu þeir Íslandi þriggja-stiga forskot í hálfleik 27-24. Í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum en Ísland þó ávallt feti framar. Finnland jafnaði 29-29 og komust yfir 31-32 en þá komu sex stig í röð frá Íslandi og þeir leiddu 37-31. Liðin skiptust á körfum út leikhlutann og var staðan 45-44 fyrir Íslandi eftr þrjá leikhluta. Í lokaleikhlutanum komust Finnar í 47-49 en strákarnir náðu að kreista fram forskotið á ný og unnu í hörkuleik 64-58. Sigur Íslands var mjög góður en með honum tryggðu strákarnir sér þriðja sætið. Þeir unnu sterkt finnskt lið sem vann Ísland fyrr í vikunni. Einar Árni spilaði á öllum 12 leikmönnum sínum en tíu þeirra skoruðu í dag. Sýnir það breidd liðsins að spila á öllum leikmönnum sínum en samt vera að bæta sig sem lið. Stig: Valur Valsson 20 stig Oddur Birnir Pétursson 12 stig Snorri Hrafnkelsson 10 stig Arnar Björnsson 7 stig Kristófer Acox 4 stig Þorsteinn Ragnarsson 3 stig Andri Daníelsson 2 stig Ágúst Orrason 2 stig Andri Skúlason 2 stig Maciej Baginski 2 stig Emil Einarsson og Matthías Sigurðsson komu inná en náðu ekki að skora.