24 maí 2009Nú er hálfleikur í úrslitaleik 18 ára landsliðs karla gegn Finnlandi á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð. Drengirnir leiða með 13 stigum, 46-33 eftir að jafnt hafði verið með liðunum framan af leik. Haukur Pálsson er stigahæstur íslensku drengjanna með 12 stig auk 6 frákasta og 4 stoðsendinga. Tómas Tómasson hefur skorað 11 stig og Haukur Óskarsson 9. Hægt er að fylgjast með leiknum í [v+]http://smartstat.svenskidrott.se/netcasting/ [v-]beinni tölfræðilýsingu hér[slod-].