23 maí 2009Það hefur verið í nógu að snúast hjá íslensku dómurunum sem eru með íslenska hópnum á Norðurlandamótinu í Solna. Samhliða því að dæma leiki á mótinu sækja þær námskeið einnig hjá toppfyrirlesurum frá FIBA Europe. Dómarar frá Íslandi eru: Rögnvaldur Hreiðarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson, Jakob Árni Ísleifsson og Halldór Geir Jensson. Miguel Betancor einn af yfirmönnum dómaramála hjá FIBA Europe er á staðnum og hefur farið yfir eitt og annað með dómarahópnum sem dæmir á mótinu. Luigi Lamonica einn af toppdómurum FIBA Europe hefur einnig verið að kenna á námskeiðinu. Fleiri fyrirlesarar hafa einnig komið að þessu námskeiði sem er samstarfsverkefni Norðurlandaþjóðanna.