23 maí 2009Strákarnir í U-18 mæta Finnum í úrslitum Norðurlandamótsins en það var ljóst eftir sigur Íslands á Noregi áðan. Ísland vann öruggan sigur 75-60 en strákarnir spiluðu afar vel á löngum köflum í leiknum. Ísland er efst með þrjá sigra í riðlinum á meðan Finnar eru með tvo sigra en vegna hagstæðra úrslita úr innbyrðis viðureignum fara þeir í úrslitaleikinn. Byrjunarlið Íslands: Tómas Tómasson, Trausti Eiríksson, Ægir Þór Steinarsson, Björn Tyler Björnsson og Sigurður Þórarinsson. Arnþór Guðmundsson var í búning í dag en hann er að jafna sig á ökklameiðslum. Ingi Þór þjálfari byrjaði með hann á bekknum en eins og leikurinn þróaðist í dag þá þurfti hann ekki að setja hann inná. Það var ljóst frá fyrstu sekúndu að strákarnir voru gífurlega einbeittir en þeir tóku öll völd á vellinum. Fyrsta karfan kom frá besta manni vallarins Hauki Pálssyni en strákurinn setti 13 stig á fyrstu sjö mínúturm leiksins. Norðmenn komust yfir 2-3 með körfu og víti að auki og leiddu. En það var í eina skiptið sem þeir voru yfir í leiknum. Ísland átti næstu átta stig leiksins og munurinn orðinn sjö stig. Noregur bætti við einni körfu en þá skoraði Ísland næstu níu stig leiksins og munurinn orðinn 14 stig 19-5 eftir sjö mínútur. Haukur Pálsson þurfti svo að fara út af með tvær villur en Noregur kláraði leikhlutann með síðustu fimm stigunum og munurinn níu stig eftir fyrsta leikhlutann 19-10. Noregur byrjaði annan leikhluta af krafti en þeir skoruðu níu fyrsti stigin og jöfnuðu 19-19. Ísland náði að vinna sig aftur inn í leikinn og keyrðu muninn upp á ný og leiddu 31-21 þegar þrjár mínútur voru eftir. Noregur náði enn á ný að minnka muninn og í hálfleik munaði aðeins þremur stigum 38-35 en síðustu stig hálfleiksins voru norsk. Seinni hálfleikur var eign Íslands frá upphafi til enda en þeir hófu hann með því að skora níu stig gegn engu og leiddu 52-39 að þriðja loknum. Í fjórða leikhluta reyndi Noregur að minnka muninn en leikurinn var eign Íslands og lokatölur voru 75-60 en munurinn fór mest í 21 stig. Strákarnir lentu í villuvandræðum snemma í leiknum en þeir Tómas Tómasson, Trausti Eiríksson, Ægir Steinarsson og Haukur Pálsson voru komnir með 2 og 3 villur mjög snemma í leiknum. Þeir náðu að spila sig út úr því og landa þessum mikilvæga sigri. Stig: Haukur Pálsson 27 stig Tómas Tómasson 11 stig Ægir Steinarsson 10 stig Haukur Óskarsson 9 stig Daði Berg Grétarsson 8 stig Trausti Eiríksson 6 stig Arnar Pétursson 2 stig Sigurður Þórarinsson 2 stig Ragnar Nathaníelsson, Þorgrímur Björnsson og Björn Tyler Björnsson spiluðu en náðu ekki að skora. Arnþór Guðmundsson hvíldi vegna meiðsla. Úrslitaleikurinn er á morgun kl. 11.15(9.15 að íslenskum tíma.