22 maí 2009Í dag leika öll liðin okkar á NM yngrilandsliða einn leik. Allir tímar hér að neðan eru að íslenskum tíma og hægt er að fylgjast með þeim í [v+]http://smartstat.svenskidrott.se/netcasting/ [v-]beinni tölfræðilýsingu hér[slod-]. U18 kvenna hefja leik íslensku liðanna og mæta Noregi núna kl. 9.00. U18 karla mætir sterku liði Finna kl. 11.00 og þurfum við á sigri að halda til að auka möguleika okkar á sæti í úrslitaleiknum. U16 karla mætir svo liði Svía kl. 15.00, en sigur hér kæmi okkur í góða stöðu fyrir lokaleikinn á morgun. U16 kvenna mæta stöllum sínum frá Svíþjóð kl 13.00. Úrslit allra leikja og dagskrá mótsins má svo sjá [v+]http://www.basket.se/t1.asp?p=104847 [v-]hér[slod-]. Áfram Ísland!