21 maí 2009Frumraun stelpnanna í U-16 var gegn Noregi hér í Solna og stóðust stelpurnar eldskírn sína með glæsibrag. Fyrstu mínúturnar leiksins voru nokkuð stirðar en eftir að leikmennirnir höfðu komið sér betur inn í leikinn fór allt á flug. Íslenska liðið spilaði pressuvörn allan leikinn og áttu þær norsku í töluverðum vandræðum með hana. Svo fór að stelpurnar unnu 80-51. Byrjunarlið Íslands: Arnína Lena Rúnarsdóttir, Hrafnhildur Sævarsdóttir, Thelma Ásgeirsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir og Ína María Einarsdóttir. Eftir smá sviðsskrekk í upphafi leiks fór leikur Íslands á flug og þær náðu góðu forskoti. Góður og grimmur varnarleikur skilaði þeim forskotinu. Í stöðunni 4-8 fyrir Noreg fór pressuvörn Íslands að virka og auðveldu körfurnar byrjuðu að skila sér. Þær breyttuni stöðunni í 9-10 og svo skoruðu þær 11 síðustu stig leikhlutans og leiddu 9-21. Margrét Rósa Hálfdanardóttir kom sterk af bekknum í fyrsta leikhluta og skoraði 10 stig í honum. Annar leikhluti hófst eins og sá fyrsti endaði, einstefna af hálfu Íslands. Stelpurnar skoruðu tíu fyrstu stigin og allt stefndi í stórsigur Íslands. Noregur tók leikhlé í stöðunni 9-31 og stilltu upp sinni eigin pressuvörn. Þetta hafði áhrif á íslensku stelpurnar sem áttu í töluverðu basli að bregðast við henni og Noregur átti næstu körfur leiksins og skoruðu fimm stig í röð. Ísland náði ekki að halda dampi út hálfleikinn og munurinn var 14 stig í hálfleik 24-38. Noregur hélt uppteknum hætti í upphafi þriðja leikhluta og fór munurinn niðurfyrir tíu stig 29-38 en þá kom góður kafli hjá Íslandi þar sem þær náðu vopnum sínum á ný. Þær fóru að leysa pressuvörn Noregs betur ásamt því að sóknaraðgerðir stelpnanna urðu markvissari. Við þetta jókst munurinn á ný og öll vön Noregs að ná að komast betur inn í leikinn fór út um þúfur. Ísland 33-55 þegar fjórði leikhluti hófst. Lokaleikhlutinn var aldrei spennandi þar sem það var augljóst hverjir færu með sigur af hólmi og Ísland vann að lokum góðan sigur 51-80. Íslensku þjálfararnir notuðu breiddina í liðinu í leiknum og til að halda uppi þeim mikla hraða og krafti sem liðið var með í byrjun skiptu þeir ferskum löppum inn á reglulega. T.a.m. höfðu 11 leikmenn leikið fyrstu sex mínútur leiksins. Þetta hafði jákvæð áhrif á liðið en þær voru á fullu gasi allan leikinn. Allir leikmenn liðsins komust á blað í sigrinum. Stig: María Ben Jónsdóttir 13 stig Berglind Gunnarsdóttir 12 stig Margrét Rósa Hálfdanardóttir 12 stig Eva Rós Guðmundsdóttir 9 stig Thelma Ásgeirsdóttir 7 stig Ína María Einarsdóttir 6 stig Sandra Grétarsdóttir 4 stig Árnína Lena Rúnarsdóttir 4 stig Sigrún Albertsdóttir 4 stig Árný Sif Gestsdóttir 4 stig Hrafnhildur Sævarsdóttir 3 stig Dagbjört Samúelsdóttir 2 stig Næsti leikur stelpnanna er gegn Danmörku kl. 18.30(16.30 að íslenskum tíma).